Jæja komin vika frá síðasta bloggi eða eitthvað þannig
Vikan er búin að vera nokkuð fljót að líða! það er komin meira en mánuður síðan að ég kom hingað, tíminn er ekkert smá fljótur að líða! Ég verð farin til New York áður en að ég veit af
Á mánudaginn fór ég í skólann

og það komu nýjar stelpur, tvær svartar frá London... þannig að við erum orðin 12 í þessum tíma

hahah æjj mér finnst gott að vera bara fá

en allavega þá var Henrike ekki þarna þannig að ég fór bara að spjalla við Geoff frá Kanada, hann fór að spurja mig um Eirík red og Leif Eiríksson haha og ég stóð þarna eins og asni og vissi voða lítið

þau sem sagt læra um þá í Kanada hahah. Fyrri hlutinn af námskeiðinu (sem sagt fyrir pásu) gékk frekar brussulega

ég var ekki alveg að skilja allt en svo eftir pásu þá var þetta mun betra

Svo tók ég strætóinn með Geoff, skrýtna palestínu gaurnum og gaur frá japan, að lestarstöðinni og svo var það lestin heim og aftur strætó

og þá var ég loksins komin heim! Námskeiðið er alltaf í 2 og hálfa klst. en að komast þanngað og aftur heim tekur mig 3 klst hahah
Niðrá strönd horft í áttina að Alicante
Áttinn til Benidorm 
Þriðjudagurinn fór bara í það að hjálpa Chary og svona eins og vanalega og svo lærði ég þegar að littlu snúllurnar fengu sér siesta

og svo var bara verið í leti hérna heima minnir mig
Miðvikudagurinn þá fórum við á markaðinn minnir mig

keyprum ávexti og grænmeti

svo var hádegismatur þegar að við komum heim.... svo var aðeins slappað af og svo lagði ég af stað niðrá strönd til þess að taka lestina í skólann

Stelpurnar frá London komu og þá sagði kennarinn okkar við þær að þær væru í vitlausum tíma þannig að við erum aftur orðin 10

haha en við vorum bara 6 í dag sem að var bara nokkuð nice
Markaðurinn
MarkaðurinnÉg man ekkert hvað ég gerði á fimmtudaginn

en ég held að við höfum bara verið heima í leti og svo farið í smá göngutúr hérna fyrir aftan húsið okkar
Adriana fyrir aftan raðhúsið sem að er á móti okkar.Á föstudaginn þá átti Omar afmæli og hann hætti að vinna kl.14 og þá fóru þau í golf með kennara til þess að laga sveifluna hjá þeim og eitthvað og ég var hérna heima að passa, Paula sofnaði fyrst og svaf í 1. klst og svo þegar að hún vaknaði þá sofnaði Adriana og svaf þangað til að Chary kom heim, Chary var síðan búin að bóka nudd fyrir Omar eftir golfið og svo fóru þau í barnasund og ég var bara hérna heima, talaði við mömmu í símanum og svona

þegar að þau komu heim fékk Adriana að borða og Paula sofnaði svo í fanginu mínu þannig að ég lagði hana bara niður og svo svæfði ég Adriana og kl.22 þá fóru Omar og Chary út að borða og ég var að passa sem að gékk bara mjög vel

Paula vaknaði bara einu sinni en ég svæfði hana bara aftur
Í gær vaknaði ég kl. 10:30

og þá voru þau öll að fara til Valencia eða þar einhverstaðar í kring, þannig að ég hoppaði bara í sturtu og tók því rólega og fór svo niðrí Alicante í eitt moll þar Plaza Mar og verslaði smá
Plaza Mar mollið
Alicante
síðan fór ég heim fékk mér smá að borða og horfði á How I met your mother

og svo fór ég bara að gærja mig fyrir næstu Alicante ferð haha ég var komin þangað um 20 og þar hitti ég Geoff og við fórum og fengum okkur ís í vindinum og kuldanum! hahaha og svo vorum við bara að labba um fórum eitthvað í gamla bæjinn og þar eru endalausar tröppur og tröppurnar hafa götuheiti hahaha

pínu kjánalegt en samt töff og maður sér að það sem að er nýji hlutinn af gamla hverfinu þar eru venjulegar hurðar en gamli hlutinn er með litlar hurðar haha

það var bara nokkuð gaman að labba þarna um

þetta var svolítið eins og í bíómyndinni Mamma Mia

sem sagt tröppurnar... og útsýnið þarna uppi var geggjað!

þannig að já frekar töff! svo fórum við á bar og ég fékk mér appelsínusafa og hann fékk sér té hahah það hefur aldrei verið drukkið svona mikið té í kringum mig held ég hahah

en ég smakkaði té í fyrsta skipti í gær

og þetta var bara nokkuð gott! svo löbbuðum við meira þarna hjá bryggjunni og svona

og ég tók mynd fyrir bátakallana í fjölsk. haha og svo fórum við á té stað haha og þar var verið að reykja tópak úr svona stórum pípum haha

svona eins og í bíómyndunum hahah

svo allt í einu fattaði ég góðan hlut klukkuna! hahaha og þá var 5 mín þangað til að seinasta lestinn myndi fara þannig að við drifum okkur! og já ég missti af lestinni hahaha

ekki alveg nógu gott! þar sem að lestinn tekur mun styttri tíma heldur en strætóinn! þannig að við löbbuðum að strætóskýlinu niðrá bryggju og biðum þar í kuldanum

svo kom strætó 21N og við auðvita jeyy! loksins! svo á leiðinni heim þá var ég alveg já ég kannast við þennan stað og þennan stað en ekki þennan stað og ekki þennan stað

og svo var eins og við værum að fara aftur til Alicante haha

þannig að ég fór að tala við bílstjórann sem talaði auðvita litla ensku!!!


en mér tókst að komast að því að ég var í vitlausum strætó! ég átti að taka 21C og ég auðvita jáhh alveg rétt hahah þannig að ég fór aftur til Alicante! rosa stuð og svo var 25 mín í strætóinn og mér var skítkalt þannig að ég fór inn á burger king og pantaði mér franskar sem að voru góðar á meðan þær voru heitar en já frekar ógeðslegar

hahah svo loksins kom strætóinn!!

og ég stoppaði niðrá strönd og keyrði svo heim á bílnum

ótrúlega gott að komast heim og undir sæng!!
Útsýni yfir Alicante. (mamma sérðu turninn þarna, þetta er hótel
haha )
Höfninn
Þessar tröppur höfðu götuheiti 
Í dag vaknaði ég um 9 og já er ekki búin að vera að gera mikið, er að fara að kíkja aðeins í spænsku bækurnar

svo er það bara skólinn á morgun

Ég er búin að taka nokkrar myndir svona hér og þar þannig að ég skelli þeim inn hérna með

spurning hvort að afi kannist við sig

haha
-Hanna Víkingur-
(já alstaðar er maður kallaður víkingur! hahaha)